Nýjast á Local Suðurnes

Magnús Garðarsson: ” Arion banki vill eignast allt félagið án þess að borga fyrir það”

Verksmiðja Stakksbergs í Helguvík

Magnús Ólafur Garðarsson, stofnand United Silicon, hefur sent frá sér tilkynningu vegna kæru sem stjórn United Silicon lagði fram á hendur honum í gær vegna gruns um stórfelld auðgunarbrot og skjalafals.

Í tilkynningunni, sem send var fjölmiðlum og finna má í heild sinni hér fyrir neðan segir meðal annars að Arion banki sé að reyna að eignast allt félagið án þess að borga fyrir það.

„Arion Banki hefur farið með stjórn á félaginu síðan í vor, þar sem erfiðlega gekk að reka verksmiðjuna af tæknilegum ástæðum, auk þess sem það vantaði fé til þess að lagfæra hana og koma rekstrinum í lag. Arion Banki og hluthafar í hópi með bankanum komu að mestu leyti með það fé, en kröfðust þess í staðinn að taka völdin í félaginu. Það gerðu þeir með því að setja inn sína eigin stjórnarmenn. Ég samþykkti það og fór út úr stjórn félagsins til að greiða veginn til að laga það sem laga þurfti. Bankinn stoppaði hins vegar ekki þar og hefur hann í síðustu viku reynt að taka hlutabréf okkar einstaklinga sem hafa fjárfest í félaginu. Nú í þessari viku hef ég verið kærður fyrir eitthvað meint brot, sem ég get ekki ímyndað mér hvað er, enda hef ég ekki heyrt neitt um málið fyrr enn í gærkvöldi og þá í gegnum fjölmiðla.

Það er augljóst að Arion Banki er að reyna að koma mér í eins lélega stöðu og mögulegt er, svo hann geti eignast allt félagið án þess að borga fyrir það. Þetta eru með skítugustu brögðum sem ég hef séð beitt í viðskiptaheiminum.

Ég bíð eftir að heyra hver þessi meintu brot eru, svo ég geti varið mig og sannleikurinn komi fram. Ég er tilbúinn að vinna með stjórn félagsins og/eða héraðssaksóknara til að lýsa málinu frá öllu hliðum.“

Magnús segir að umfjöllunin í hans garð hafi verið óvægin og að hún hafi því miður skaðað fjölskyldu hans hér á Íslandi og svo 24 aðra einstaklinga „á Íslandi, í Danmörku og Hollandi, sem eru hluthafar í félaginu og hafa fjárfest sparifé sínu verksmiðjuna, sem átti að vera flottasta kísilver í heimi, og vinna í góðu samstarfi með umhverfi sitt, þannig að Ísland geti verið stolt af að taka þátt í grænu sólarbyltingu heimsins, sem þarfnast mikinn kísil til að framleiða allar þær sólarrafhlöður sem er þörf á í heiminum.“