Tilraun til að smygla unglingspilti til landsins enn í rannsókn
Unglingspiltur sem kom hingað til lands með serbneskum manni nýverið er nánast örugglega ekki sonur mannsins líkt og maðurinn hélt fram við komuna hingað til lands.
Þetta kemur fram á mbl.is en þar er einnig greint frá því að mál piltsins sé í rannsókn hjá lögreglunni á Suðurnesjum og vill Ólafur Helgi Kjartansson, lögreglustjóri á Suðurnesjum, ekki tjá sig um málið að öðru leyti en það sé litið mjög alvarlegum augum.
Drengurinn hefur verið í umsjón barnaverndaryfirvalda frá því hann kom hingað til lands um síðustu helgi.