Nýjast á Local Suðurnes

Grindavíkurstúlkur hófu tímabilið með stæl – 9-0 sigur á Gróttu

Grindvíkingar léku sinn fyrsta leik í sumar í 1.deild kvenna  í Grindavík í gærkvöldi og það er óhætt að segja að þær byrji tímabilið með stæl, en þrátt fyrir kröftuga byrjun áttu mótherjarnir úr Gróttu aldrei möguleika í leiknum, sem fram fór í blíðskaparveðri, eins og sjá má á meðfylgjandi myndum.

Leikurinn fór skemmtilega af stað og greinilegt að bæði lið ætluðu sér 3 stig úr leiknum, en eftir að fyrsta markið kom frá Campbell á 28. mín. virtist sem allur vindur væri úr Gróttustúlkum, en þetta virtist gefa heimamönnum byr í seglin. Campbell setti sitt annað mark á þegar um fimm mínútur lifðu fyrri hálfleik, og staðan í hálfleik 2-0.

Í hálfleik virtust Grindavíkurstúlkur hafa fengið sér eins og eina flösku af Lýsi því að þær gulklæddu hreinlega röðuðu inn mörkum, og hefðu getað bætt við fleirum.

Grindavíkurstúlkur eru því efstar í deildinni eftir fyrstu umferð. Leiknum var lýst á beint á Hljóðbylgjunni og að sögn tæknimanna miðilsins voru fjölmargir hlustendur um allt land.

grindav grotta fotb3

 

 

grindav grotta fotb2

grindav grotta fotb1