Nýjast á Local Suðurnes

Rafn Markús verður yfirmaður knattspyrnumála hjá Njarðvík

Rafn Markús Vilbergsson hefur verið ráðinn yfirmaður knattspyrnumála hjá Njarðvík. Um nýtt starf er að ræða og mun Rafn meðal annars hafa yfirumsjón með afreksstarfi og uppfæra knattspyrnustefnu félagsins.

Samningurinn er til næstu þriggja ára, segir í tilkynningu frá félaginu.

“Rafn er okkur Njarðvíkingum kunnugur en hann hefur verið viðloðinn félaginu frá árinu 2005, jafnt sem leikmaður, fyrrum fyrirliði, yfirþjálfari yngri flokka og síðast sem aðalþjálfari frá 2016 til 2019.

Aldrei hefur félagið verið með yfirmann knattspyrnumála í starfi og því er um mikið framfaraskref að ræða fyrir deildina. Knattspyrnudeild Njarðvíkur hefur stækkað ört á síðustu árum og er iðkenndafjöldi okkar að nálgast 400 iðkenndur. Með fleiri iðkenndum eru gerðar frekari kröfur til þess að félagið komi til móts við þá og skapi umgjörð þar sem iðkenndur félagsins geta látið fótboltadrauma sína rætast.

Yfirmaður knattspyrnumála kemur til með að halda utan um þróun leikmanna frá 13 ára aldri. Hann mun þannig tengja saman starf yngri flokka og meistaraflokks með enn betri hætti. Þá mun hann jafnframt sjá um og vera með yfirumsjón yfir afreksstarfi félagsins, uppfæra knattspyrnustefnun félagsins og innleiða áherslur sem þar koma fram í alla flokka.

Með ráðningu Rafns sjáum við fram á að efla knattspyrnustarf félagsins í heild sinni ásamt því að veita leikmönnum, jafnt strákum sem stelpum, tækifæri á að bæta sig sem einstaklingar. Við bjóðum Rabba velkominn aftur til starfa hjá Njarðvík!”