Nýjast á Local Suðurnes

Teknir hjálmlausir á vespu á Reykjanesbraut

Mynd: Lögreglan á Suðurnesjum

Lögreglunni á Suðurnesjum barst tilkynning þess efnis að tveir drengir væri hjálmlausir á vespu á Reykjanesbraut og ækju í áttina til Keflavíkur. Þeir voru stöðvaðir og fluttir á lögreglustöð. Forráðamönnum þeirra var gert viðvart um ferðalagið. Vespuna sögðust þeir hafa fengið að láni á höfuðborgarsvæðinu.

Enn fremur reyndist ungur piltur sem ók bifhjóli ekki hafa til þess tilskilin réttindi. Einnig var hjólið óskráð og ótryggt. Forráðamönnum hans og barnaverndarnefnd var tilkynnt um atvikið