Bæjarstjórn Garðs ályktar um tvöföldun Reykjanesbrautar

Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Garðs skorar á Alþingi og samgönguyfirvöld að setja í forgang framkvæmdir við tvöföldun Reykjanesbrautar, frá Fitjum í Reykjanesbæ að Rósaselstorgi í Sveitarfélaginu Garði. Einnig bendir bæjarstjórn á nauðsyn þess að hið fyrsta verði ráðist í framkvæmdir til að tryggja öryggi á gatnamótum á þessari leið. Umferðarþungi hefur aukist mjög mikið á þessari leið, bæði vegna mikillar fjölgunar farþega um Keflavíkurflugvöll sem og vegna íbúafjölgunar á svæðinu og aukinna umsvifa á mörgum sviðum. Ekki verður búið við óbreytt ástand vegarins öllu lengur, ekki síst vegna öryggis vegfarenda.
Ályktun bæjarstjórnar hefur verið send til innanríkisráðherra, Umhverfis-og samgöngunefndar Alþingis, þingmanna Suðurkjördæmis og Vegagerðarinnar.