Nýjast á Local Suðurnes

Börnum brugðið við sprengingar á skólalóð

Börnum sem stunda nám við Akurskóla í Innri – Njarðvík var brugðið um hádegisbil í dag þegar hvellettur voru sprengdar á skólalóðinni. Svo virðist sem þeim hafi verið kastað úr bíl á ferð. Hvellirnir voru nokkuð háir og heyrðust vel innan veggja skólans og víða um hverfið samkvæmt íbúum í nálægum húsum sem blaðamaður ræddi við.

Þetta kemur fram í tölvupósti frá stjórnendum skólans til foreldra, en þar kemur fram að ekkert barn hafi verið við leik á skólalóðinni, en foreldrar eru hvattir til að ræða málið við börn sín. Lögreglu var gert viðvart og mun hafa málið til skoðunar.