Leik Njarðvíkur og Stjörnunnar frestað
![korfubolti](https://i0.wp.com/www.sudurnes.net/wp-content/uploads/2015/12/ball-605958_1280.jpg?resize=620%2C264)
Leik Njarðvíkur og Stjörnunnar í Domino´s deild kvenna sem átti að fara fram í kvöld hefur verið frestað. Ástæðan er vegna heitavatnsleysis í Reykjanesbæ og annars staðar á Reykjanesinu.
Þóttu leikaðstæður ekki fullnægjandi og því var leik frestað.
Nýr leikdagur er fimmtudagurinn 12. október kl. 19:15.