Nýjast á Local Suðurnes

Fundu vel fyrir sprengingu

Íbúar í Innri-Njarðvík virðast hafa fundið vel fyrir sprengingu sem Landhelgisgæslan framkvæmdi nú um hádegisbil við efnisnámurnar í Stapafelli.

Nokkur fjöldi íbúa í hverfinu segir hvellinn hafa verið nokkuð öflugan að þessu sinni, eða eins og einn orðar það þá virtist sem ekið hafi verið á hús sem viðkomandi var staddur í.