Hraðakstur á Reykjanesbraut og Grindavíkurvegi
...Og klippurnar á lofti
![lögreglan](https://i0.wp.com/www.sudurnes.net/wp-content/uploads/2015/06/lögreglan.jpg?resize=493%2C264)
Tólf ökumenn voru kærðir fyrir of hraðan akstur í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum í vikunni. Sá sem hraðast ók mældist á 143 km. hraða þar sem hámarkshraði er 90 km. á klukkustund. Ýmist áttu brotin sér stað á Reykjanesbraut eða Grindavíkurvegi.
Þá voru skráningarnúmer fjarlægð af bifreiðum sem ýmist voru óskoðaðar eða ótryggðar. Loks hafði lögregla afskipti af ökumanni sem ók enn á nagladekkjunum og þarf hann að greiða sekt.