Nýjast á Local Suðurnes

Hasar í undirskriftasöfnun gegn deiliskipulagi Thorsil

Hópur sem safnar undirskriftum til að mótmæla fyrirhuguðu kísilveri Thorsil í Helguvík neitaði kröfu starfsmanns Nettó um að yfirgefa svæðið í gær og var lögregla kölluð til. Lögreglumenn sem mættu á vetvang ræddu við hópinn en  aðhöfðust þó ekkert þegar hópurinn neitaði að fara út fyrir lóðarmörk verslunarkjarnans.

Undirskriftasöfnunin gegn deiliskipulaginu hófst í byrjun júlí á vefnum island.is og stendur yfir þar til á fimmtudag en auk þess að safna á netinu er gengið í hús og safnað undirskriftum.

Forsvarsmenn hópsins sem stendur að undirkriftasöfnuninni sögðu í samtali við Local Suðurnes í morgun að yfir 2.000 manns væru búnir að skrifa undir nú þegar og vildu þau hvetja fólk sem á það eftir að gera það sem fyrst en söfnuninni lýkur eins og áður sagði á fimmtudag.

Hópurinn hvetur fólk sem vill taka þátt til að hafa samband og bjóða fram aðstoð en eftirfarandi tilkynning er á Facebooksíðu hópsins:

Undirskriftasöfnuninni lýkur á fimmtudaginn og þangað til er öll hjálp vel þegin. Ef einhverjir hafa áhuga á að taka smá rölt og ganga í hús þá endilega hafið samband við okkur með því að senda okkur skilaboð á síðunni.