sudurnes.net
Ráðherra staðfestir örnefnið Fagradalshraun - Local Sudurnes
Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, hefur með erindi dagsettu 2. júlí sl. staðfest ákvörðun bæjarstjórnar Grindavíkurbæjar um að það hraun sem nú rennur við Fagradalsfjall verði nefnt Fagradalshraun. Þetta kemur fram á vef sveitarfélagsins. Forliðurinn vísar til Fagradalsfjalls sem dregur nafn sitt af dal, vestan í fjallinu. Fagradalsfjall var og er eitt þekktasta örnefnið í nágrenni hraunsins. Þá vísar forliðurinn einnig til Fagradalsfjallskerfisins, eins af nokkrum eldstöðvakerfum á Reykjanesskaga en hraunið rennur úr Fagradalsfjallskerfinu. Grindavíkurbær óskaði í lok mars eftir tillögum frá almenningi að heitum á ný náttúrufyrirbæri innan sveitarfélagsins. Alls bárust 339 hugmyndir að heiti á hraunið. Bæjarstjórn samþykkti örnefnið Fagradalshraun á fundi sínum þann 25. maí og vísaði örnefninu til staðfestingar mennta- og menningarmálaráðherra með vísan til laga nr. 22/2015. Meira frá SuðurnesjumFramkvæmdaleyfi vegna Suðurnesjalínu 2 fellt úr gildiSuðurnesjabær hefur ekkert að segja varðandi áformuð búsetuúrræði fyrir flóttafólkKjarasamningar við sveitarfélögin samþykktir – Gildir afturvirkt frá 1. maí 2015Hráefni til framleiðslu United Silicon landað í HelguvíkFrestun fasteignagjalda verður útvíkkuðUndirskriftasöfnun vegna deiliskipulagsbreytinga hefst 2. júlíLeikskólabörn ræddu breytingar á Ljósanótt við bæjarstjóraVíðismenn söfnuðu fyrir fjölskyldu Jóhannesar Hilmars – Frábær mæting á völlinnTvö ísraelsk flugfélög fljúga á KEF í sumarUnglingalandsliðin í körfu: Framtíðin er björt á Suðurnesjum