Nýjast á Local Suðurnes

Snarpur skjálfti hristi hús

Nokkuð öflugur jarðskjálfti fannst vel á Suðurnesjum nú um klukkan 0:40, og sé miðað við færslur á samfélagsmiðlum hristtust hús víðsvegar á Suðurnesjum nokkuð vel.

Samkvæmt óstaðfestum mælingum á vef veðurstofu mældist skjálftinn 4 að stærð.

Uppfært: Skv. Staðfestum mælingum veðurstofu var skjálftinn 3,8 að stærð.