Loka fyrir rafmagn í hluta Keflavíkurhverfis

Vegna vinnu í dreifistöð við Skólaveg í Reykjanesbæ, aðfaranótt 10.ágúst er óhjákvæmilegt að fasteignir sem tengjast viðkomandi stöð verði án rafmagns á meðan vinnu stendur.
Eigendur fasteigna á þessu svæði sem hafa skráð símanúmer hjá HS Veitum hafa fengið senda tilkynningu um straumleysið með SMS (smáskilaboðum) og tölvupósti sem hafa skráð tölvupóstfang, segir í tilkynningu.
Gert er ráð fyrir því að rafmagn verði tekið af kl. 00:00 á miðnætti aðfaranótt miðvikudags 10.ágúst og rafmagn verði komið á aftur eigi síðar en kl. 05:00 að morgni 10.ágúst.
