Nýjast á Local Suðurnes

Fyrstu landsleikirnir á Vogabæjarvelli fara fram í sumar

Það myndast oft flott stemning á Vogabæjarvelli

Þróttur í Vogum mun sjá um utanumhald vegna tveggja landsleikja í Norðurlandamóti drengja í knattspyrnu, U-17, sem fram fer hér á landi í sumar. Tveir leikir munu fara fram á vellinum í Vogum, en þetta er í fyrsta sinn sem landsleikir í knattspyrnu fara fram á Vogabæjarvelli.

Leikirnir fara fram þriðjudaginn 1. ágúst.

Norður Írland – Pólland kl.12:00
Ísland – Noregur kl. 16:00