Nýjast á Local Suðurnes

Ingvar Jónsson til Sandefjord í norsku B-deildinni

Landsliðsmarkvörðurinn og fyrrverandi leikmaður Njarðvíkur í knattspyrnu, Ingvar Jónsson hefur gengið til liðs við Sandefjord í norsku B-deildinni en hann hefur skrifað undir þriggja ára samning við félagið. Þetta kemur fram á fótbolti.net.

Ingvar var besti leikmaður Pepsi-deildarinnar þegar Stjarnan varð Íslandsmeistari árið 2014, hann gekk til liðs við Start í Noregi en þar mátti hann sætta sig við töluvert mikla bekkjarsetu. Eftir að hafa verið á láni hjá Sandnes Ulf síðari hlutann af síðasta tímabili þá mun Ingvar leika aftur í norsku B-deildinni í ár.

Ingvar sem er 26 ára gamall hefur verið viðloðandi íslenska landsliðshópinn en hann hefur spilað nokkra landsleiki, meðal annars gegn Finnum og Sameinuðu arabísku Furstadæmunum fyrr í mánuðinum, þar sem hann þótt standa sig vel.