Nýjast á Local Suðurnes

Innflytjendur 28% íbúa á Suðurnesjum

Hlutfall innflytjenda af mannfjölda var mest á Suðurnesjum, samkvæmt nýjum tölum Hagstofunnar, en þar voru 28% innflytjendur af fyrstu eða annarri kynslóð. Næsthæst var hlutfallið á Vestfjörðum þar sem 22,3% mannfjöldans voru innflytjendur og börn þeirra.

Innflytjendur á Íslandi voru 61.148 eða 16,3% mannfjöldans þann 1. janúar 2022. Innflytjendum heldur áfram að fjölga og voru þeir 15,5% landsmanna (57.126) í fyrra. Frá árinu 2012 hefur hlutfallið farið úr 8,0% mannfjöldans upp í 16,3%. Innflytjendum af annarri kynslóð fjölgaði einnig á milli ára, voru 6.117 í byrjun árs 2021 en 6.575 1. janúar síðastliðinn. Samanlagt var fyrsta og önnur kynslóð innflytjenda 18% af mannfjöldanum og hafði það hlutfall aldrei verið hærra. Einstaklingum með erlendan bakgrunn, öðrum en innflytjendum, fjölgaði einnig lítillega á milli ára og voru 7,2% mannfjöldans.