Nýjast á Local Suðurnes

Tveimur bílaleigum hafnað um starfsleyfi

Tveimur bílaleigum var hafnað um starfsleyfi í Reykjanesbæ þegar erindi Samgöngustofu vegna umsóknar þeirra um leyfi til að reka ökutækjaleigu voru tekin fyrir á fundi bæjarráðs á dögunum.

Á fundinum var lögð fram umsögn byggingarfulltrúa Reykjanesbæjar og með vísan til fyrirliggjandi umsagnar byggingarfulltrúa var umsóknunum hafnað. Í svari við fyrirspurn sagði Sveinn Björnsson, byggingarfulltrúi Reykjanesbæjar, að um tæknileg atriði væri að ræða varðandi bílastæðamál og fleira, sem ekki hafi verið fullkláruð í umsóknunum og að fyrirtækin myndu laga það og leggja fram umsóknir á ný, sem verði þá væntanlega samþykktar.