Nýjast á Local Suðurnes

Umferðatafir á Reykjanesbraut eftir árekstur tveggja jeppa

Myndin tengist fréttinni ekki beint

Tveir sjúkrabílar, lögreglubifreið og tækjabíll slökkviliðsins voru send á vettvang umferðarslyss á Reykjanesbraut í hádeginu, eftir árekstur tveggja jeppa. Tildrög slyssins voru þau að jeppabifreið ók aftan á aðra jeppabifreið, sem var með kerru í eftirdragi með þeim afleiðingum að bifreiðarnar enduðu utan vegar til móts við byggðina í Hvassahrauni.

Tveir voru fluttir á sjúkrahús en meiðsli þeirra eru minniháttar. Nokkrar tafir urðu á umferð til suðurs vegna árekstursins auk þess sem töluvert tjón varð á bílunum.