Nýjast á Local Suðurnes

Vilja takmarka lausagöngu hunda og banna lausagöngu katta

Lausaganga hunda og katta var til umræðu á fundi umhverfis- og ferðamálanefndar Grindavíkur á dögunum, en nefndinni bárust erindi varðandi þessi mál.

Nefndin þakkaði fyrir erindin og lagði til að bætt verði úr merkingum þar sem lausaganga hunda er bönnuð. Þá var samþykkt að óska eftir viðaukabeiðni við fjárhagsáætlun svo koma megi upp hundagerði sem fyrst.

Nefndin fór ítarlega yfir mál er varða lausagöngu katta og tekur undir þær áhyggjur sem íbúar hafa af ónæðinu sem því fylgir.

Nefndin skoðaði samþykktir hjá Norðurþingi þar sem lausaganga katta er bönnuð og fól upplýsinga- og markaðsfulltrúa að kanna hvernig þeirri samþykkt væri framfylgt. Þá var óskað eftir því að gerð verði frétt á vefsíðu bæjarins með vinsamlegum tilmælum til þeirra sem eiga ketti.