Nýjast á Local Suðurnes

Byggingaverktakar gangi frá framkvæmdasvæðum

Fyrsta haustlægðin er væntanleg í dag og gera veðurspár ráð fyrir talsverðri rigningu og hvössum suð-austan vindi. Landsbjörg hvetur því öll til að huga vel að sínu nærumhverfi, taka inn garðhúsgögn og ekki síst taka niður trampolín og huga að ferðavögnum.

Þá eru byggingaverktakar hvattir til að ganga vel frá framkvæmdasvæðum sínum, tryggja að byggingarefni fari ekki af stað í veðrinu, segir í tilkynningu.