Reykjanesið mun koma út á ný þegar samþykki samkeppniseftirlits liggur fyrir
Vefpressan, fjölmiðlafyrirtæki Björns Inga Hrafnssonar, bíður þess enn að Samkeppniseftirlitið veiti samþykki sitt fyrir kaupum þess á tólf blöðum sem Fótspor ehf. gaf áður út. Björn Ingi segir líklegt að ekki sé langt í að leyfi fáist en þangað til sé bara hægt að bíða.
„Þetta er ferli sem lögin segja til um, við megum ekkert gera fyrr en græna ljósið er fengið. Ég hef enga ástæðu til að ætla annað en að það gerist á næstunni,“ segir Björn Ingi Hrafnsson, útgefandi og stjórnarformaður Vefpressunnar, í samtali við mbl.is.
Hann segir að þegar leyfi Samkeppniseftirlitsins liggi fyrir verði aftur hafin útgáfa á blöðunum. „Það verður ekkert dregið úr heldur bara bætt í,“ segir Björn Ingi og bætir því við að ný blöð muni líta dagsins ljós.
Á meðal þeirra blaða sem Fóstpor gaf út fyrir kaup Vefpressunnar var blaðið Reykjanes sem gefið var út hálfsmánaðarlega og dreift ókeypis til íbúa á Suðurnesjum. Sigurður Jónsson ritstjóri Reykjaness hafði ekki enn heyrt í forsvarsmönnum Vefpressunnar þegar Local Suðurnes náði tali af honum í gær og sagðist því ekkert vita um áframhaldandi útgáfu blaðsins.