Enn á gjörgæslu eftir árekstur á Sandgerðisvegi
![logreglan bill](https://i2.wp.com/www.sudurnes.net/wp-content/uploads/2015/08/logreglan-bill1.jpg?resize=620%2C264)
Kona sem slasaðist alvarlega í árekstri sem varð í kjölfar eftirfarar lögreglu á Sandgerðisvegi þann 18. janúar síðastliðinn liggur enn mikið slösuð á gjörgæslu.
Í tilkynningu frá lögreglu sem send var út eftir áreksturinn segir að lögreglumenn hafi veitt stolinni bifreið eftirför og að henni hafi verið ekið langt yfir leyfilegum hámarkshraða. Karlmaður á þrítugsaldri sem ók bifreiðinni hafði verið sviptur ökuréttindum, auk þess að vera undir áhrifum fíkniefna.
Maðurinn, sem handtekinn var á vettvangi, er enn í haldi lögreglu. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Suðurnesjum er rannsókn málsins á lokastigi, segir á vef RÚV.
Í áðurnefndri tilkynningu frá lögreglu sagði jafnframt að lögreglumenn sem veittu eftirförina hafi dregið verulega úr hraða lögreglubifreiðarinnar áður en slysið varð.