Nýjast á Local Suðurnes

Áttaði sig ekki á fjalægð frá bílalúgu og ók utan í söluturn

Bifreið var ekið utan í söluturn í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum í gær. Ökumaður, sem ætlaði að versla í bílalúgu, áttaði sig ekki á því hversu nærri bifreiðin var söluturninum og ók utan í horn byggingarinnar. Skemmdir urðu bæði á byggingunni og bifreiðinni.

Þessu til viðbótar hafa orðið nokkur umferðaróhöpp í umdæminu á síðustu dögum. Ökumaður sem ók Reykjanesbraut missti bifreið sína út af veginum í mikilli hálku. Ekki urðu slys á fólki en bifreiðin var óökufær eftir óhappið. Annar ökumaður sem  ók fram hjá vettvangi missti einnig stjórn á sinni bifreið og hafnaði hún utan vegar.

Þá varð umferðaróhapp á Njarðarbraut og voru báðar bifreiðirnar óökufærar á eftir, en ekki slys á fólki.