Nýjast á Local Suðurnes

KEF tekur miklum breytingum – Sjáðu myndirnar!

Miklar framkvæmdir hafa staðið yfir á Keflavíkurflugvelli undanfarin misseri, en ný álma á flugvellinum verður tekin í notkun í áföngum frá lokum næsta árs. Áætluð verklok eru árið 2024.

Nýr vefur, kefplus.is, hefur verið settur á laggirnar til að veita innsýn í framtíð Keflavíkurflugvallar og hvernig unnið verður að þróun hans.

Þar má meðal annars sjá tölvuteiknaðar myndir af því hvernig ný austurálma flugvallarins á að líta út. Stefnt er að því að opna álmuna í áföngum frá lokum 2023 og að endanleg verklok séu árið 2024. Álman verður 25 þúsund fermetrar og er hönnuð með tilliti til framtíðar stækkunaráforma.