Nýjast á Local Suðurnes

Taka höndum saman og veita neyðaraðstoð fyrir jól

Neyðaraðstoð Rauðakrossins, Kvenfélags Grindavíkur, Sjómanna- og vélstjórafélags Grindavíkur, Lionsklúbbs Grindavíkur, Verkalýðsfélags Grindavíkur og Grindavíkurkirkju fer fram í ár eins og síðustu ár fyrir þá sem lítið fé hafa handa á milli um jólin.

Þetta kemur fram á vef Grindavíkur. Þar segir að hægt er að sækja um úthlutun með því að leggja fram umsókn í Grindavíkurkirkju virka daga á milli klukkan 09:00 og 12:00 frá og með 21. nóvember til og með 6. desember næstkomandi.