Nýjast á Local Suðurnes

Algjört “umferðarklúður” á Suðurnesjum

Lögreglan á Suðurnesjum biðlar til fólks í umdæminu að halda sig heima í dag, en bílar eru fastir mjög víða á akbrautum, sem gerir snjómoksturstækjum erfitt fyrir.

Jæja kæru vinir, nú eru skilaboðin skýr.
Á eftirlitsferð okkar rétt í þessu veittum við því athygli að fólksbílar eru fastir mjög víða á miðri akbraut og engin vegur að komast framhjá þeim. Þessi færð er eingöngu fyrir vel búna jeppa, fólksbílar komast einfaldlega ekki leiðar sinnar í þessu. Festist einn bíll myndast flöskuháls sem er ansi fljótt að skafa upp að og myndast þannig algjört umferðar”klúður”. Þeir sem festa sig á illa búnum bílum tefja fyrir snjómoksturstækjum og stjórnendum þeirra sem eru allir að reyna sittt allra besta. Skilaboð okkar til ykkar eru þessi. Ef þú ert ekki á vel búnum jeppa, vertu þá bara heima og í guðs bænum virðið lokanir, segir í tilkynningu frá lögreglu.