Nýjast á Local Suðurnes

Jólasnjór á leiðinni

Veðurstofan gerir ráð fyrir Suðaustan 10-15 metrum á sekúndu, með snjókomu, á Suðurnesjum, í kvöld.

Jólasnjórinn á leiðinni sýnist okkur. En samkvæmt spá þá á að snjóa seint í kvöld og alla nótt. Þessi snjókoma gæt haft áhrif á færð og fleira í fyrramálið.
Spáin er svona.
Suðaustan 10-15 m/s með snjókomu, talsverð snjókoma á köflum. Einnig má búast við skafrenningi og takmörkuðu eða lélegu skyggni og versnandi akstursskilyrðum, einkum á fjallvegum, segir í tilkynningu frá lögreglu.