sudurnes.net
Sat hjá við atkvæðagreiðslu um fjárhagsáætlun - Stefnir í hækkun fasteignagjalda - Local Sudurnes
Fjárhagsáætlun Reykjanesbæjar var til umræðu, og samþykkt, á bæjarstjórnarfundi í gær, en athygli vakti að bæjarfulltrúi Umbótar, Harpa Sævarsdóttir, sat hjá við atkvæðagreiðsluna þar sem Umbót telur að svigrúm sé til lækkunar á álagsprósentu fasteignagjalda. Samkvæmt bókun sem Harpa lagði fram og sjá má í heild hér fyrir neðan, stefnir í 4,3% meðaltalshækkun á fasteignagjöldum í Reykjanesbæ. Harpa Sævarsdóttir, bæjarfulltrúi Umbótar, lagði fram eftirfarandi bókun: „Ég vil byrja á því að lýsa ánægju minni á fyrirkomulagi fjárhagsætlanagerðar og þakka því starfsfólki Reykjanesbæjar sem hefur komið að þessari vinnu undanfarna mánuði.Það hefur eflaust verið krefjandi að hafa okkur fulltrúa með í ferlinu en um leið hefur það dýpkað okkar skilning á fjárhagsáætlun í heild sinni og þeim kostnaðarliðum sem liggja á bakvið samanteknar tölur í birtri áætlun. Að því sögðu teljum við í Umbót að svigrúm sé til lækkunar á álagsprósentu fasteignagjalda í ljósi þess að fasteignamat íbúðarhúsnæðis í bæjarfélaginu mun vera að hækka um 17,5% skv. fasteignamati 2024. Útleggst það sem 4,3% hækkun á fasteignagjöldum að meðaltali. Slík hækkun er að hafa veruleg áhrif á ráðstöfunartekjur heimila. Í þeim tilvikum sem húseigendur eru einnig lánsettir þá eru ráðstöfunartekjur þeirra heimila nú þegar verulega skertar vegna stýrivaxtahækkana síðastliðinna 18 mánaða. Þess [...]