Nýjast á Local Suðurnes

Grindavík með fjögur lið í bikarúrslitum?

Það stefnir í að Grindvíkingar verði fjölmennir í Laugardalshöllinni um bikarhelgina í ár. Stelpurnar í meistaraflokki tryggðu sig þangað með góðum sigri á Stjörnunni og fá því tækifæri á að verja titilinn, en það eru fleiri lið frá Grindavík einnig á leið í Höllina. Stelpurnar í 10. flokki kvenna eru komnar í úrslit eftir sigur á Keflavík en þær urðu einmitt bikarmeistarar í fyrra í 9. flokki, þar sem þær sigruðu títtnefnt lið Keflavíkur í úrslitum.

Lið unglingaflokks karla er einnig komið í úrslit en þeir sigruðu Stjörnuna í Ásgarði, 69-84. Þá eiga stelpurnar í 9. flokki leik í kvöld í Mustad höllinni í Grindavík kl. 20:00 þar sem þær mæta Keflavík í undanúrslitaleik.

Grindvíkingar eru hvattir til að fjölmenna á völlinn og styðja sínar stúlkur til sigurs.