sudurnes.net
Enn tekist á um bókasafnsflutninga - Óskar eftir rökstuðningi frá bæjarstjóra - Local Sudurnes
Kjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri Reykjanesbæjar, hefur sem kunnugt er lýst sig vanhæfan varðandi fyrirhugaðan flutning bókasafns bæjarins í Hljómahöll þar sem Rokksafn Íslands og Tónlistarskóli Reykjanesbæjar eru til húsa, meðal annars þar sem hann starfaði á árum áður sem skólastjóri tónlistarskólans. Þetta finnst bæjarfulltrúa Umbótar, Margréti Þórarinsdóttur, vera sérstök ákvörðun hjá bæjarstjóranum, þar sem bæjarstjóri þurfi í starfi sínu að taka erfiðar ákvarðanir. Í bókun sem Margrét lagði fram á fundi bæjarstjórnar óskaði hún eftir rökstuðningi frá bæjarstjóra varðandi ákvörðunina. Bókun Margrétar: „Mér finnst nokkuð sérstakt að bæjarstjóri skuli lýsa sig vanhæfan til frekari vinnu við undirbúning verkefnisins. Það blasir við að bæjarstjóri er ósáttur við þær breytingar sem búið er að samþykkja að verði gerðar á Rokksafninu og flutningi bókasafnsins. Ég hefði nú haldið að það teldist ekki vera vanhæfi þó menn væru ósammála. Ég spyr því háttvirtan bæjarstjóra sem er ráðinn embættismaður, hyggst hann lýsa sig vanhæfan í öðrum málum sem meirihlutinn felur honum að framkvæma og hann er ósammála hugmyndafræðilega? Það eitt að vera ósammála er ekki grundvöllur fyrir ráðinn embættismann að lýsa sig vanhæfan. Stundum þarf að taka erfiðar ákvarðanir og þær lúta oftar en ekki að því að draga úr kostnaði og skera niður útgjöld. [...]