Verðmætum stolið úr bíl við Bláa lónið
![thjofur](https://i2.wp.com/www.sudurnes.net/wp-content/uploads/2016/05/thjofur.jpg?resize=620%2C264)
Lögreglunni á Suðurnesjum var tilkynnt um þjófnað úr bifreið sem lagt var á bílastæði við Bláa lónið í gær.
Tilkynningin barst frá erlendum ferðamanni sem sagði Samsung síma, tvö sett af airpods og peningum hafa verið stolið úr bifreiðinni meðan viðkomandi var í lóninu.
Sá sem fyrir þessu varð taldi verðmæti munanna nema um 150 þúsund krónum.