Nýjast á Local Suðurnes

Knattspyrnudeildin réttu megin við núllið

Jón Ben var einn í kjöri til formanns

Jón G. Benediktsson var einn í kjöri til formanns Knattspyrnudeildar Keflavíkur á aðalfundi deildarinnar sem fram fór á dögunum. Tvær breytingar  urðu þó á stjórn deildarinnar,  Hjördís Baldursdóttir og Ólafur Birgir Bjarnason gengu úr stjórninni og voru þeim þökkuð vel unnin störf. Þeir Margeir Vilhjálmsson og Kristján Jóhannsson komu inn í varastjórn í stað Hjördísar og Ólafs.

Á fundinum kom fram að rekstur Knattspyrnudeildar er í góðu jafnvægi og hefur deildin verið rekin réttu megin við núllið.