Heilsuleikskólinn Heiðarsel fagnaði 25 ára afmæli
![heidarsel2 25 ara](https://i1.wp.com/www.sudurnes.net/wp-content/uploads/2015/10/heidarsel2-25-ara.jpg?resize=620%2C264)
Heilsuleikskólinn Heiðarsel fagnaði 25 ára afmæli á dögunum. Margt var til gamans gert á afmælisdaginn, m.a. farið í skrúðgöngu um hverfið undir trumbuslætti, segir á heimasíðu Reykjanesbæjar.
Tveir af starfsmönnum skólans, þær Ólöf Sigurrós Gestsdóttir leikskólakennari og Sigríður Hrönn Guðmundsdóttir matartækir, voru heiðraðar á afmælisdaginn en þær hafa verið starfsmenn frá opnun skólans.