Nýjast á Local Suðurnes

Heilsuleikskólinn Heiðarsel fagnaði 25 ára afmæli

Heilsuleikskólinn Heiðarsel fagnaði 25 ára afmæli á dögunum. Margt var til gamans gert á afmælisdaginn, m.a. farið í skrúðgöngu um hverfið undir trumbuslætti, segir á heimasíðu Reykjanesbæjar.

Tveir af starfsmönnum skólans, þær Ólöf Sigurrós Gestsdóttir leikskólakennari og Sigríður Hrönn Guðmundsdóttir matartækir, voru heiðraðar á afmælisdaginn en þær hafa verið starfsmenn frá opnun skólans.

heidarsel olof sigridur