Nýjast á Local Suðurnes

Framkvæmdir á Hafnargötu

Hafnargata í Reykjanesbæ verður lokuð að hluta miðvikudaginn 2. september vegna framkvæmda. Um er að ræða kaflann frá Heiðarvegi niður að Skólavegi.

Stefnt er að fræsa þennan hluta vegarins næstu tvo daga . Ef veðurspá rætist,  þá verður malbikað á föstudaginn. Viðeigandi merkingar og hjáleiðir verða settar upp.