Nýjast á Local Suðurnes

Njarðvíkingur keppir fyrir Noregs hönd á sterku borðtennismóti

Hinn hálf-íslenski Borgar Haug, sonur hjónanna Áslaugar Skúladóttur úr Njarðvík og hins Norska Tom-Erik Haug, tekur um þessar mundir þátt í ungverska Junior og Cadet mótinu, sem fram fer fram dagana 2.-6. nóvember í Savaria höllinni í  Szombathely í Ungverjalandi.

Um mjög sterkt mót er að ræða og er hægt að fylgjast með úrslitum mótsins hér. Borgar keppir á mótinu fyrir Noreg í Cadet flokki og er að standa sig afbragðsvel, en hægt er að sjá hann spila hér á mótinu.  Hann varð í gær efstur í sínum undanriðli í einliðaleik  þar sem hann sigraði Levente Krebs frá Ungverjalandi og Andrei Tomica frá Rúmeníu og leikur hann í dag í 64 manna úrslitum þar sem er beinn útsláttur.

Í tvíliðaleik leikur kappinn með liðsfélaga sínum Alexander Fransson. Þeir félagar töpuðu naumlega í annarri umferð gegn sterku pari frá Frakklandi (Jules Cavaille og Bilal Hamache) 3-2, eftir að hafa unnið í fyrstu umferð par frá Chile og Serbíu 3-1.

Í liðakeppninni lék Cadet lið Noregs í riðli með Ungverjalandi og Singapúr.  Noregur tapaði 3-2 gegn Ungverjalandi en þar vann Borgar báða leiki Noregs gegn þeim Patrik Juhasz og Csaba Andras.  Leikurinn gegn Singapúr fór 3-0 fyrir Singapúr.