Nýjast á Local Suðurnes

Skerðing á starfsemi Reykjanesbæjar vegna heitavatnsleysis

Ljósmynd: Reykjanesbær.is / OZZO

Í ljósi þess að heitt vatn er farið á Suðurnesjum þarf að grípa til lokana víða í starfsemi sveitarfélagsins og þar til varalögn kemst í gagnið.

Fimmtudagur 8. febrúar

  • Allar sundlaugar lokaðar
  • Íþróttahúsum verður lokað kl. 17:00 og öllum kappleikjum aflýst
  • Félagsmiðstöð / 88 hús lokar kl. 17:00
  • Leik- og grunnskólar ásamt tónlistarskóla starfa til kl. 16:00 að öllu óbreyttu.
  • Starfsemi velferðarsviðs starfar út daginn að öllu óbreyttu.
  • Söfn loka kl. 16:00
  • Ráðhús og bókasafn lokar kl. 16:00

Föstudagur 9. febrúar (og meðan ekki er heitt vatn á sveitarfélaginu)

  • Allt skólastarf í leik- og grunnskólum auk tónlistarskóla fellur niður.
  • Öll íþróttamannvirki verða lokuð.
  • Starfsemi Velferðarsviðs verður með eftirfarandi hætti:
    • Hefðbundin starfsemi í sérstökum búsetuúrræðum. Suðurgata, Seljudalur og Stapavellir.
    • Björgin – opið í Lautinni
    • Hæfingarstöðin- lokað
    • Selið – lokað
    • Dagdvöl og félagsstarf á Nesvöllum – lokað
    • Heima- og stuðningsþjónusta verður skert en haldið verður uppi nauðsynlegri þjónustu.
  • Ráðhús og bókasafn – lokað
  • Söfn lokuð