Nýjast á Local Suðurnes

“Þakklæti efst í huga þessi jólin” – Feðgarnir Ragnar og Adam njóta jólanna í Noregi

Ragnar Vilhelmsen Hafsteinsson stóð, eins og flestum ætti að vera kunnugt, í ströngu fyrr á árinu þegar sonur hans, Adam, skilaði sér ekki til baka eftir dvöl hjá móður sinni í Slóvakíu. Ragnar leitaði að lokum aðstoðar erlendra sérfræðinga við að sækja drenginn og færa til Noregs þar sem þeir feðgar búa um þessar mundir.

Töluvert var ritað um málið í fjölmiðlum á sínum tíma og er forsaga þess sú að Ragnar og barnsmóðir hans slitu samvistum árið 2012 og þar sem ekki náðist samkomulag um umgegni fór málið fyrir dóm. Var það niðurstaða dómsins að Ragnar færi með fulla forsjá drengsins enda myndi það henta hagsmunum barnsins best.

adam ragnar

Adam líkar lífið í Noregi og hefur aðlagst vel

Feðgarnir njóta nú hátíðanna í Noregi og sagði Ragnar í samtali við Local Suðurnes lífið í Noregi ganga vonum framar.

“Eftir langa og erfiða forræðisdeilu fluttum við feðgarnir til Noregs þar sem við hófum nýtt líf saman og hefur það gengið vonum framar.” Sagði Ragnar.

Og hann bætti við: “Þetta nýja líf var næstum tekið frá okkur í október síðastliðnum og við tók vægast sagt ævintýraleg atburðarás þar öllu var fórnað í að verja þetta nýja líf okkar sem og að tryggja áframhaldandi samveru okkar feðga.”

Aðspurður segir Ragnar að þeim feðgum gangi vel að aðlagast lífinu á nýjum slóðum, hann geti leyft sér að vinna eðlilegan vinnutíma og eyða frítímanum með syni sínum. Adam aðlagast lífinu í Noregi einnig mjög vel:

“Í dag gengur okkur afskaplega vel í alla staði. Adam fær glimrandi dóma frá skólanum, gengur vel og talar reiprennandi norsku með réttum staðarhreim og öllu tilheyrandi.” Segir Ragnar.

Þakklæti efst í huga þessi jólin

Þeim feðgum er þakklæti efst í huga þessi jólin enda lögðu fjölmargir hönd á plóg og aðstoðuðu þá við að sameinast á ný í október:

“Það að við feðgarnir séum að eyða jólunum saman hér í Noregi væri með öllu ómögulegt án þeirrar aðstoðar sem við fengum, án vina minna og fjölskyldu, hefði þetta ekki verið hægt.

Ég á ykkur allt að þakka og sá kærleikur, ást og stuðningur sem ég og sonur minn höfum fengið að njóta frá ykkur er Eitthvað sem ég mun aldrei getað endurgoldið.” Sagði Ragnar að lokum.