Nýjast á Local Suðurnes

Opna öflugustu hraðhleðslustöð landsins

Brimborg Bílorka hefur opnað öflugustu hraðhleðslustöð landsins á Flugvöllum 8 í Reykjanesbp. Stöðin er með hámarks afl upp á 600 kW. Boðið verður upp á fría hraðhleðslu til 1. desember næstkomanri, en eftir að opnunartilboði lýkur er verð á kWh hins vegar það lægsta miðað við hleðsluafköst eða aðeins frá 49 kr / kWh.

Stöðin er opin fyrir alla rafbílanotendur með auðveldu aðgengi og einfaldri greiðslulausn með e1 appinu.

Stöðin getur hlaðið 8 ökutæki í einu og allar tegundir ökutækja hvort sem eru fólksbílar, sendibílar, vörubílar, rútur eða strætisvagnar, segir í fréttatilkynningu. Hámarks hleðsluafköst eru allt að 400 kW fyrir einstök ökutæki.