Hlaut opið beinbrot við að sækja hrífu
Karlmaður í Njarðvík slasaðist þegar hann féll úr stiga í bílskúr sínum um helgina. Hann hafði verið að sækja hrífu upp á milliloft þegar óhappið varð.
Í tilkynningu frá lögreglu kemur fram að við fallið hafi maðurinn hlotið opið beinbrot á ökla og var fluttur með sjúkrabifreið á bráðamóttöku Landspítala í Fossvogi.