Nýjast á Local Suðurnes

Tengdasonur Árna var svaramaður í Middleton-brúðkaupi

Matthews og Pippa - Mynd: Skjáskot af vef The Sun

Tengdasonur Árna Sigfússonar, fyrrverandi bæjarstjóra í Reykjanesbæ, rallökumaðurinn Ralph Firman, var svaramaður James Matthews, sem gekk að eiga Pippu Middleton um helgina. Pippa er sem kunnugt er yngri systir hertogaynjunnar af Cambridge, Cathrine, en sú er eiginkona Vilhjálms Bretaprins. Brúðkaupið vakti mikla athygli um heim allan.

Matthews er, að sögn Árna mikill Íslandsvinur og hefur oft komið hingað til lands og meðal annars klifið upp í Bjarnarey, synt sjósund í Klaufinni við Stórhöfða, auk þess að veislustýra brúðkaupi dóttur Árna og tengdasonar, sem haldið var í Lava restaurant í Bláa lóninu.

Árni rekur kynni sín af Matthews í stuttum pistli á Facebook, en pistilinn má sjá í heild sinni hér fyrir neðan.