Nýjast á Local Suðurnes

Minnst lesið á árinu: Frétt af fundi um fjármál vakti lítinn áhuga lesenda

Peningar eru hundleiðinlegt umræðuefni, að minnsta kosti ef eitthvað er að marka lesturinn á þeirri frétt sem fæstir lásu á vef Sudurnes.net á árinu. Frétt um íbúafund um fjárhagsáætlun Sandgerðisbæjar var lesin af tveimur aðilum og færum við þeim báðum bestu þakkir fyrir.

Fyrir þá sem hafa áhuga á að lesa frétt af fundi sem löngu er búið að halda má smella hér.