Nýjast á Local Suðurnes

Skoða útfærslu fasteignagjalda í Grindavík

Fasteignaeigendur í Grindavík þurfa að greiða fasteignagjöld sem eru í greiðsludreifingu og á gjalddaga 1. nóvember 2023, en eftir það verða málin skoðuð. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Grindavíkurbæ.

Tilkynning sveitarfélagsins í heild:

Mikið hefur verið spurt um greiðslu fasteignagjalda og hvert framhaldið verður í því sambandi.

Hvað varðar árið 2023 þá þurfa fasteignaeigendur að greiða síðasta gjalddaga ársins, þ.e. gjalddaga 1. nóvember 2023 sem er síðasta greiðsla í greiðsludreifingu fasteignagjalda fyrir árið 2023.

Í skoðun er útfærsla á fasteignagjöldum fyrir árið 2024. Ljóst er að það hvílir lagaskylda á sveitarfélaginu um að leggja árlega á fasteignaskatt.
Hvað varðar önnur fasteignagjöld þá er það í skoðun hvort skuli leggja þau á og þá hversu há fjárhæð það ætti að vera ef þá einhver.
Þessi gjöld eru:
Lóðarleiga
Vatnsgjald
Fráveitugjald
Sorpgjald
Rotþróargjald

Endanleg útfærsla verður klár í janúar 2024 og verður sú útfærsla kynnt á heimasíðu bæjarins, segir í tilkynningu.