sudurnes.net
Skoða útfærslu fasteignagjalda í Grindavík - Local Sudurnes
Fasteignaeigendur í Grindavík þurfa að greiða fasteignagjöld sem eru í greiðsludreifingu og á gjalddaga 1. nóvember 2023, en eftir það verða málin skoðuð. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Grindavíkurbæ. Tilkynning sveitarfélagsins í heild: Mikið hefur verið spurt um greiðslu fasteignagjalda og hvert framhaldið verður í því sambandi. Hvað varðar árið 2023 þá þurfa fasteignaeigendur að greiða síðasta gjalddaga ársins, þ.e. gjalddaga 1. nóvember 2023 sem er síðasta greiðsla í greiðsludreifingu fasteignagjalda fyrir árið 2023. Í skoðun er útfærsla á fasteignagjöldum fyrir árið 2024. Ljóst er að það hvílir lagaskylda á sveitarfélaginu um að leggja árlega á fasteignaskatt.Hvað varðar önnur fasteignagjöld þá er það í skoðun hvort skuli leggja þau á og þá hversu há fjárhæð það ætti að vera ef þá einhver.Þessi gjöld eru:LóðarleigaVatnsgjaldFráveitugjaldSorpgjaldRotþróargjald Endanleg útfærsla verður klár í janúar 2024 og verður sú útfærsla kynnt á heimasíðu bæjarins, segir í tilkynningu. Meira frá SuðurnesjumAlmannavarnir: Ekki vera á ferðinni eftir kl. 17Uppfylla ekki öll skilyrði eftirlitsnefndar og auglýsa stöðu fjármálastjóraFjarlægja jólatré í næstu vikuHefja kennslu í Dalshverfi í tímabundnu húsnæði í haustVindasamt á laugardag – Hvassast í GrindavíkTæplega 60% íbúa mjög andvígur stóriðju í HelguvíkHættuleg gatnamót við Hringbraut – Ljósin til en ekki fjármagnið til að setja þau uppEkki [...]