Nýjast á Local Suðurnes

Þorvaldur Orri til Njarðvíkur

Körfuknattleiksdeild Njarðvíkur hefur samið við Þorvald Orra Árnason til eins árs.

Þorvaldur sem er 21 árs var á mála hjá Cleveland Charge, sem er venslalið Cleveland Cavs í NBA deildinni. Áður var Þorvaldur hjá KR þar sem hann ól manninn og vakti athygli fyrir góða frammistöðu í Subway deildinni. Þar skilaði hann 13 stigum, 5 fráköstum og 3 stoðsendingum að meðaltali í leik.