Nýjast á Local Suðurnes

Bæjaryfirvöld ræða við kennara – Skólar í Reykjanesbæ í hópi þeirra bestu á landinu

Bæjaryfirvöld í Reykjanesbæ munu heimsækja alla sex grunnskóla bæjarins í vikunni og hefja samtal við kennara um hvernig best megi haga vinnu við að bæta framkvæmd vinnumats, ná sátt um starfsumhverfi kennara og létta álagi af þeim.

Í bókun með nýjum kjarasamningi er gert ráð fyrir að samningsaðilar vinni sameiginlegan vegvísi að aðgerðaráætlun sem lagður verður fram í janúar 2017 og Ríkissáttasemjara verður gerð grein fyrir framgangi bókunar þrisvar á samningstíma til að tryggja framgang og eftirfylgni verkefnisins.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Reykjanesbæ, en þar segir einnig að bylting hafi orðið í öllu skólastarfi í Reykjanesbæ á síðustu árum. Nám í lestri og stærðfræði hefst með skipulögðum hætti í leikskólum sem undirbýr nemendur enn betur fyrir grunnskólann. Útkoman er betri árangur sem fært hefur grunnskólana í hóp þeirra fremstu á Íslandi. Þessum árangri vilja bæjaryfirvöld alls ekki glata og telja mikilvægt að ná sátt við kennara sína um framangreind atriði.