Subway á Fitjum orðinn einn sá stærsti á landinu – Mikill fjöldi ferðamanna sækir staðinn
![subway fitjum](https://i2.wp.com/www.sudurnes.net/wp-content/uploads/2017/05/subway-fitjum.jpg?resize=620%2C264)
Subway á Fitjum í Reykjanesbæ hefur verið opnaður að nýju eftir miklar og gagngerar endurbætur og stækkun. Veitingastaðurinn var rúmlega tvöfaldaður að stærð og er nú 180 fermetrar og rúmar 65 manns í sæti.
Er Subway á Fitjum nú orðinn einn af stærstu Subway stöðum landsins. Í tilkynningu frá fyrirtækinu segir að staðurinn hafi verið stækkaður til að mæta aukinni aðsókn sem fylgt hefur straumi ferðamanna til landsins. Staðurinn verður sem fyrr opinn allan sólarhringinn.