Nýjast á Local Suðurnes

200 krónur af hverri sendingu góðgerðarsamtaka

Verslun Nettó við Krossmóa

Verslunarkeðjan Nettó mun styrkja góðgerðarsam­tök um 200 krón­ur af hverri send­ingu úr net­versl­un fyr­ir­tæk­is­ins. Verk­efnið sem ber yf­ir­skrift­ina: Not­um netið til góðra verka mun standa yfir til loka nóvember.

Óskað er eft­ir til­lög­um frá viðskipta­vin­um um hvaða góðgerðarsam­tök eigi að styðja á heimasíðu verslunarkeðjunnar, netto.is. Á heimasíðunni er hægt að velja á milli eftirfarandi flokka: Góðgerðar- og menntamál, æskulýðs- og forvarnarstarf, heilbrigður lífsstíll og umhverfismál. Þá er í boði að benda fyrirtækinu á einstaka samtök eða málefni.