Diamond Suites opnar í maí – Verður fyrsta fimm stjörnu hótel landsins

Diamond Suites, fyrsta fimm stjörnu hótel landsins, verður opnað formlega í Keflavíkurhverfi Reykjanesbæjar þann 17. maí næstkomandi. Hótelið er á efstu hæð Hótel Keflavíkur, sem er fjögurra stjörnu hótel, en sama dag og áðurnefnd opnun fer fram fagnar hótel Keflavík 30 ár afmæli sínu.
Í umfjöllun Local Suðurnes um endurbæturnar á Hótel Keflavík og breytingarnar á húsnæðinu við að koma Diamond Suites í 5 stjörnurnar, kom meðal annars fram að heildarkostnaður við endurbætur og uppbyggingu Diamond Suites væri nú þegar komin vel yfir 300 milljónir króna.
Athyglisvert: Snjósscooter – Pantaðu núna og við sendum þoturass frítt með!
Steinþór Jónsson hótelstjóri sagði í spalli við Local Suðurnes að um 40-50 milljónum króna hafi verið varið árlega síðastliðin fjögur ár í þennan áfanga þ.e. í breytingar á húsnæði Hótels Keflavíkur og uppbyggingu Diamond Suites, en lokahnykkurinn, sem tekinn var á þessu ári kostar vel á annað hundruð milljónir.
„Grunnurinn að þessu má segja að sé dugnaður fjölskyldunar og sérstaklega foreldra minna ásamt því að við höfum farið hægt í uppbygginguna,“sagði Steinþór í spjalli við Local Suðurnes.
„Við höfum byggt hótelið upp á 30 árum og við höfum aldrei tekið stór langtímalán fyrir þessum breytingum en notið góðrar aðstoðar hverju sinni frá viðskiptabönkum okkar.“ sagði Steinþór.